Nýtt efni, nýir möguleikar

Haldið í samstarfi við Félag íslenskra vefnaðarkennara.

Námskeiðið er ætlað öllum vefnaðarkennurum á grunn- og framhaldsskólastigi jafnt sem vefnaðarkennurum utan skólakerfisins. Skráning á námskeiðið og fyrirspurnir eru á johing@simnet.is.

 



Markmið námskeiðsins er að:

  • kynna vefnaðarkennurum nýja tækni og aðferðir við vefnað.
  • kynna ný efni til vefnaðar til viðbótar við þekkt náttúruefni.
  • auka þekkingu vefnaðarkennara til að bæta stöðu þeirra í starfi.

Á námskeiðinu verður kennd notkun nýrra efna til vefnaðar sem breytir áferð á voðinni sem er ofin. Kynnt verður notkun ýmissa gerviefna í bland við náttúruefni og fyrst og fremst lögð áhersla á að kynna þessa nýju leið til að fá sem fjölbreyttastan vefnað. Efnið má nota hvort sem er í fatnað og til hvers konar myndvefnaðar eða í það sem kennarar sjá sér hag í að vinna með nýrri tækni. Það er skilyrði að þeir sem sækja námskeiðið hafi fulla þekkingu á vefnaði og uppsetningu hans þar sem ekki verður kennt að vefa.

Kennsla fer fram í Heimilisiðnaðarskólanum við Nethyl 2.

 

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

  

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

Kennsla / umsjón:

Lotte Dalgaard, danskur vefnaðarkennari sem hefur kennt vefnað víða í Evrópu auk íslenskra aðstoðarkennara.


Hvenær:

7. - 11. júní 2010, kl. 9:00 - 17:00

 

 

Verð: Nánar auglýst síðar.

 

[Til baka]