Mannréttindi og mannréttindanám

Haldið í samstarfi við Félag félagsfræðikennara í framhaldsskólum og Félag sögukennara.

Námskeiðið er ætlað kennurum í félagsfræði og sagnfræði og skyldum greinum í framhaldsskólum. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2010. Hámarksfjöldi þátttakenda er 40. Í gistingu er hámarksfjöldi 30 manns.

 

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu kennara á mannréttindum og mannréttindabrotum og hæfni til að fjalla um þessa þætti í kennslu. Fjallað verður um mannréttindasáttmála sem Ísland á aðild og umsagnir Mannréttindaskrifstofu Íslands um lagafrumvörp og skýrslur til eftirlitsnefnda Sameinuðu Þjóðanna og Evrópuráðsins. Auk þess verður farið yfir málefni flóttamanna á Íslandi og Störf Íslandsdeildar Amnesty. Kennsluaðferðir og ólíkar matsaðferðir í mannréttindakennslu verða kynntar.

Námskeiðið fer fram í háskólaþorpinu á Hvanneyri, "Gamla skólanum". Þeim sem vilja gista stendur til boða gisting í tveggja og sex manna herbergjum.

Beiðni um gistingu þarf að senda til Bjarkar Þorgeirsdóttur á bjorkth@kvenno.is.

 

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

  

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

Kennsla / umsjón:

Umsjón: Björk Þorgeirsdóttir bjorkth@kvenno.is, Hannes Ólafsson hannes@fa.is og Lóa Steinunn Kristjánsdóttir loak@msund.is. Kennarar: Kolbrún Birna Árdal, lögfræðingur, Julia Sarbo, kennslustjóri Ann Frank stofnunarinnar í Amsterdam, Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt Háskólanum á Akureyri auk þess sem ýmsir framhaldsskólakennarar segja frá mannréttindakennslu.


Hvenær:

11. - 13. ágúst 2010

 

 

Verð: Nánar auglýst síðar.

 

[Til baka]