Fuglarnir í nágrenni okkar
Haldið í samstarfi viðSamlíf, samtök líffræðikennara.
Námskeiðið er ætlað líffræðikennurum á grunn- og framhaldsskólastigi. Hámarksfjöldi þátttakenda er 24. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2010.
Á námskeiðinu verður leitast við að auka færni þátttakenda í könnun á garðfuglum, skoðun á mófuglum og fuglaljósmyndun í vettvangsferðum.Námskeiðið skiptist í þrjá hluta.
1) Fyrirlestrar; Garðfuglakönnun; fjallað um niðurstöður og tilgang garðfuglatalningarinnar sem Fuglavernd stendur fyrir á hverju ári. Vaðfuglar; Farið verður yfir tegundir og greiningu auk upplýsinga um íslenskar rannsóknir og athuganir. Fuglaljósmyndun; fjallað um hvað þarf að hafa í huga við ljósmyndun fugla í náttúrunni. Endurheimt votlendis og áhrif á fugla; Niðurstöður rannsókna á þeim áhrifum sem verða á fuglalífinu þegar votlendi er endurheimt, t.d. þegar fyllt er upp í skurði.
2) Skoðunarferðir - feltferðir; Farið verður í skoðunarferð um Borgarnes og nágrenni. Meðal annars verða fuglar taldir og greindir auk þess sem atferli og búsvæði eru könnuð. Leiðbeinendur fylgja hópnum og aðstoða við upplýsingaöflun.
3)Verkefnavinnu; unnið úr því sem fram hefur komið bæði úr fyrirlestrum og feltferðum. Þátttakendur vinna verkefni sem nýta má í kennslu. Verkefnin verða aðgengileg á vefsíðu Samlífs.
Skráningu í þetta námskeið er lokið
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / umsjón:
Umsjón: Jóhann Guðjónsson, líffræðingur og framhaldsskólakennari.Kennarar: Hlynur Óskarsson, Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Ólafur Einarsson, fuglafræðingur og framhaldsskólakennari, Örn Óskarsson, fuglafræðingur og framhaldsskólakennari, Sigurjón Einarsson, verkefnastjóri hjá Landgræðslu ríkisins, Svana Bjarnadóttir, grunnskólakennari, Þóra Árnadóttir, framhaldsskólakennari, og Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Háskólaseturs Suðurlands.
Hvenær: Fös. 18. júní - sun. 20. júní
Verð: Nánar auglýst síðar.
|