Almennar upplýsingar


Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara ráðstafar því fé sem menntamálaráðuneytið úthlutar til endurmenntunar framhaldsskólakennara. Endurmenntun Háskóla Íslands annast framkvæmd námskeiðanna í samvinnu við umsjónarmenn þeirra. Í þessu vefriti eru upplýsingar um endurmenntunarnámskeið sem verða í boði árið 2010.


Í vefritinu er einnig að finna úthlutunarreglur samstarfsnefndar vegna styrkja til einstaklinga, fagfélaga og skóla, yfirlit yfir styrki er menntamálaráðuneytið veitir framhaldsskólakennurum, úthlutunarreglur vísindasjóðs FF, yfirlit yfir styrki á vegum Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins til endurmenntunar kennara; Sókrates/Comeníus og Nordplus svo og styrki Leonardo da Vinci starfsmenntunaráætlunarinnar.


Sumarnámskeið eru greinabundin og þverfagleg námskeið sem eru haldin að frumkvæði fagfélaganna. Þessi námskeið eru flest haldin í júní og ágúst. Hægt er að skoða framboðið hér


Nám samhliða starfi fer fram á starfstíma skóla og nær yfir heilt skólaár. Skólaárið 2010-2011 verður vettvangsnám fyrir raungreinakennara og viðskipta- og hagfræðikennara í boði. Sjá nánar hér


Nám til eininga á meistarastigi. Skólaárið 2007-08 var í fyrsta sinn í boði námskeið sem metið er til eininga á meistarastigi. Námið er hugsað sem hvatning til kennara að auka menntun sína og afla sér hærri prófgráðu. Nám til 10 eininga á meistarastigi mun standa framhaldsskólakennurum til boða í þriðja sinn skólaárið 2010 – 2011. Námið er skipulagt fyrir starfandi framhaldsskólakennara með þeirra þarfir að leiðarljósi. Kennt verður í nokkrum lotum og mun námið ná yfir tvö misseri. Hafþór Guðjónsson dósent er umsjónarmaður námskeiðsins, sem haldið er af menntavísindasviði HÍ að undirlagi samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara. Viðfangsefni námskeiðsins er starfendarannsóknir í skólum. Sjá nánar hér


Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara var fyrst skipuð af menntamálaráðuneyti árið 1987.


Nefndina skipa nú:


Fulltrúi menntamálaráðuneytis, sem jafnframt er formaður nefndarinnar: Björg Pétursdóttir, netfang: bjorg.petursdottir@mrn.stjr.is.


Fulltrúar Félags framhaldsskólakennara: Ósa Knútsdóttir kennari við MS, netfang:osak@msund.is og Anna María Gunnarsdóttir kennari við FB, netfang:amg@fb.is.


Fulltrúi Háskóla Íslands: Helgi Skúli Kjartansson, prófessor við HÍ, netfang helgisk@hi.is.


Fulltrúi Félags íslenskra framhaldsskóla: Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK, netfang: mf@mk.is.


Starfsmenn nefndarinnar:


Kristín Jónsdóttir, s. 525 4233, netfang: krj@hi.is, sinnir málum nefndarinnar ásamt öðrum starfsmönnum Endurmenntunar Háskóla Íslands


Faglegur starfsmaður nefndarinnar er Kristín Runólfsdóttir, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands, netfang: kristrun@fsu.is