|
| Aðfaranám í almennri efnafræði
Hvenær:
03.08.2010 - 25.08.2010
Fyrir þá sem ætla sér í nám á háskólastigi og þurfa að bæta við sig eða rifja upp þekkingu í almennri efnafræði. Sérstaklega gagnlegt fyrir væntanlega nemendur í hjúkrunarfræði þar sem efnafræði 1. misseris er samblanda lífrænnar efnafræði en þó aðallega lífefnafræði. Grunnþekking í almennri efnafræði er nauðsynleg til að hægt sé að tileinka sér námsefnið. Námskeiðið hentar vel sem upprifjun í efnafræði fyrir nemendur sem eru að koma til náms eftir námshlé. Námskeiðið er án prófs. Skráningarfrestur er til 3. ágúst 2010
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Stærðfræði fyrir nýnema á Verkfræði- og náttúruvísindasviði
Hvenær:
09.08.2010 - 20.08.2010
Í samstarfi við stærðfræðiskor Háskóla Íslands
Einkum ætlað þeim sem telja sig þurfa að rifja upp og/eða kynna sér betur námsefni í stærðfræðinámi náttúrufræði- og eðlisfræðibrauta í framhaldsskólum.
Skráningarfrestur er til 4. ágúst 2010
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Leiðsögunám á háskólastigi - einnig kennt í fjarnámi (Haust 2010)
Hvenær:
12.08.2010 - 01.06.2011
Leiðsögunám á háskólastigi er námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námsbrautin hefst í ágúst 2010 og lýkur í lok júní 2011 Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi.
Inntökuskilyrði í námið eru: - Stúdentspróf eða sambærileg menntun. - Gott vald á íslensku. - Fullt vald á því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn. Standast þarf inntökupróf í tungumálinu. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Hugverkaréttur - með sérstakri áherslu á einkaleyfarétt (Haust 2010)
Hvenær:
15.08.2010 - 30.03.2011
Nám í Hugverkarétti er samstarfsverkefni Félags einkaleyfasérfræðinga, Einkaleyfastofu og Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Námið er sérlega hentugt þeim sem eru að taka sín fyrstu skref á sviði hugverkaréttinda og hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi, sérstaklega innan einkaleyfaréttar. Þá er námið hugsað sem grundvöllur frekari undirbúnings fyrir próf til starfsréttinda sem evrópskur forsvarsmaður einkaleyfa (European Patent Attorney), en slík réttindi opna ýmsa atvinnumöguleika hér á landi, sem og innan Evrópu. Einnig hentar námið vel stjórnendum og þeim sem bera ábyrgð á hugverkaréttindum innan fyrirtækja og stofnana hér á landi. Nemendur í framhaldsnámi, sérstaklega innan verkfræði, raunvísinda, lyf- og læknisfræði hafa einnig gagn af náminu.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Akademísk vinnubrögð: Undirbúningur fyrir háskólanám - Aukanámskeið -
Hvenær:
16.08.2010 - 20.08.2010
Ætlað öllum sem eru að hefja háskólanám og öðrum sem vilja bæta sig í akademískum vinnubrögðum.
Skráningarfrestur er til 3. ágúst 2010
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Námstækni
Hvenær:
25.08.2010 - 01.09.2010
Ætlað nemendum sem eru að hefja nám hjá Endurmenntun HÍ. Hentar þeim sem ekki hafa sótt sambærileg námskeið áður. (Ath. þetta er óskylt námskeiðinu Akademísk vinnubrögð).
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun (Haust 2010)
Hvenær:
30.08.2010 - 01.05.2011
Viðskiptaumhverfi nútímans kallar eftir fólki sem hefur færni til að taka þátt í og stjórna margvíslegum verkefnum. Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er fjölbreytt nám, ætlað öllum þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og í daglegu lífi. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS - Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa - Kynverund, siðfræði og samfélag - Kynlíf og samtími
Hvenær:
01.09.2010 - 31.12.2011
Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hvatamaður þess og ráðgjafi í upphafi var Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur. Námið er í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar. Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.
Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.
Umsóknarfrestur til 20. júní 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Matsfræði Grunnnám 24 ein -Markaðsmat 50 ein- Kostnaðarmat 50 ein (Haust 2010)
Hvenær:
01.09.2010 - 15.12.2010
Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Námsbrautin er ætluð verk- og tæknifræðingum, lögfræðingum, viðskiptafræðingum, byggingafræðingum, iðnfræðingum, löggiltum fasteignasölum og arkitektum. Auk þess er námið ætlað þeim sem hafa umfangsmikla reynslu af mannvirkjagerð og fasteignamarkaði og vilja afla sér frekari menntunar á þessu sviði. Stúdentsprófs eða sambærilegs náms er krafist sem lágmarksinntökuskilyrða. Á haustmisseri 2010 verða kennd námskeiðin Skoðun I og Skoðun II. Nánari tímsetning verður tilkynnt síðar.
Umsóknarfrestur er til 6. ágúst.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Gæðastjórnun (Haust 2010)
Hvenær:
02.09.2010 - 01.05.2011
Námið er metnaðarfullt, krefjandi og hagnýtt fyrir þá sem vilja öðlast akademíska jafnt sem hagnýta þekkingu og færni á sviði gæðastjórnunar. Nemendur öðlast víðtæka þjálfun á öllum helstu sviðum gæðastjórnunar sem gerir þeim kleift að takast á við ný og krefjandi verkefni. Námið hentar vel þeim sem bera ábyrgð á gæðamálum fyrirtækja og stofnana eða hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Google í skólastarfi
Hvenær:
20.09.2010 - 27.09.2010
Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Skráningarfrestur er til 13. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Að telja rétt fram
Hvenær:
22.09.2010 - 22.09.2010
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stunda sjálfstæðan rekstur sem fræðimenn, rithöfundar og listamenn svo og þeir sem annast um skattskil slíkra aðila. Námskeiðið hentar einnig öllum sem gera út að heiman og hafa tekjur í formi sölu á þjónustu svo og hvers konar styrkja. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Skráningarfrestur er til 14. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Að byggja upp árangursríka samvinnu við foreldra leik- og grunnskólanemenda
Hvenær:
24.09.2010 - 25.09.2010
Á námskeiðinu, sem ætlað er leik- og grunnskólakennurum, gefst áhugasömum tækifæri til að auka hæfni sína í lausnamiðuðu vinnulagi með það að markmiði að byggja upp góð samskipti og auka samvinnu við foreldra. Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda í vor.
Skráningarfrestur er til 16. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Lestur ársreikninga
Hvenær:
27.09.2010 - 28.09.2010
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja geta lesið ársreikninga fyrirtækja og skilið þær upplýsingar sem þar er að finna um afkomu og efnahag. Athygli er einnig vakin á námskeiðinu Greining ársreikninga, þar sem kafað er dýpra í kennitölur og fleira. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Flott í alla staði, mjög ánægð með frammistöðu kennara, hefur greinilega mikinn áhuga sjálfur á viðfangsefninu og með metnað um að koma námsefninu vel til skila”
- ”Sérlega vel framsett, skýrt og sett í samhengi við raunveruleikann”
- ”Virkileg skýr og skemmtilegur kennari. Bara ef allir bókfærslukennarar kæmu efninu svona vel frá sér!”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Excel I - fjármál og rekstur
Hvenær:
27.09.2010 - 04.10.2010
Ætlað öllum þeim sem starfa með Excel í tengslum við fjármál og rekstur og langar að læra meira. Gert er ráð fyrir nokkurri færni í Excel, en farið er hratt yfir grunnatriði í upphafi námskeiðs. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið. Ein. FLE: 12 almennt.
Skráningarfrestur er til 17. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Virðismat fyrirtækja
Hvenær:
29.09.2010 - 13.10.2010
Ætlað fjármálastjórum fyrirtækja sem og öðrum stjórnendum auk endurskoðenda og annarra sem koma að fjármálum fyrirtækja. Námskeiðið hefur nú verið lengt um þriðjung til að koma að verklegum æfingum í Excel. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi meðferðis fartölvur í síðasta tíma. Ein. FLE: 12 Almennt.
Skráningarfrestur er til 21. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna
Hvenær:
30.09.2010 - 01.10.2010
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla, s.s. leikskólakennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun, þ.e. leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni barna á leikskólaaldri. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað um mikilvægi traustra tengsla við ung börn, aðferðir til að skipuleggja umhverfið og deildarstarfið þannig að það ýti undir jákvæða hegðun, skýr fyrirmæli og reglur, leiðréttandi samskipti og fjölbreyttar leiðir til að styrkja viðeigandi hegðun. Í seinni hlutanum verður fjallað um aðferðir til að kenna börnum vinafærni, tilfinningafærni, reiðistjórnun og lausnamiðaða leikni.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Fjármálaenska ( e. English for global finance& banking) - International Banking, World Economics & Investments
Hvenær:
06.10.2010 - 10.11.2010
Ætlað þeim sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum fjármálaensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun. Námskeiðið fer fram á ensku. This course is designed for intermediate learners and above who would like to improve their banking and financial English in the following three areas: International Banking, World Economics and Investments.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Excel - Veltitöflur (PivotTable)
Hvenær:
07.10.2010 - 07.10.2010
Ætlað þeim sem þekkja til Excel og vilja kynna sér sérstaklega og rækilega möguleika veltitaflna. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið. Ein. FLE: 4 Almennt
Skráningarfrestur er til 29. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Grunnþættir reksturs og fjármála
Hvenær:
07.10.2010 - 28.10.2010
Ætlað öllum millistjórnendum og sjálfstætt starfandi stjórnendum sem ekki hafa menntun á sviði viðskiptafræði og vilja ná betri tökum á helstu hugtökum og aðferðafræði reksturs og fjármála.
Skráningarfrestur er til 29. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Sjóðstreymi - einn vanmetnasti kafli ársreikningsins -
Hvenær:
08.10.2010 - 08.10.2010
Æskilegt er að þátttakendur kunni skil á helstu hugtökum reikningshalds og hafi grunnþekkingu í lestri ársreiknings.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Excel II - fjármál og rekstur
Hvenær:
12.10.2010 - 19.10.2010
Ætlað öllum sem þurfa að vinna með mikið af gögnum eða setja upp líkön sem byggjast á sjálfvirkni, þ.e. fyrir alla í rekstrar-, vöru- og fjármálastjórnun og aðra sem hafa notað Excel en langar að læra meira. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið. Ein. FLE: 12 Almennt.
Skráningarfrestur er til 4. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Hugarkort: Verkfæri kennarans
Hvenær:
13.10.2010 - 13.10.2010
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:
- Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Greining ársreikninga
Hvenær:
18.10.2010 - 19.10.2010
Námskeiðið er ætlað þeim sem þurfa að rýna í ársreikninga fyrirtækja og gera ýmsar greiningar á þeim. Hér er kafað dýpra í ársreikninga heldur en á námskeiðinu Lestur ársreikninga, en þetta námskeiðið er þó sjálfstætt. Reiknað er með að þátttakendur séu læsir á ársreikninga, þ.e. hafi góðan skilning á eðli þeirra og formi. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Frábært námskeið sem mæla má með við aðra, ekki hvað síst á þessum tímum”
- ”Mjög gott námskeið”
- ”Bjarni er fyrirtaks kennari og eins og áður fer maður fróðari af námskeiðum hans”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Skattlagning óheimillrar úttektar úr atvinnurekstri
Hvenær:
18.10.2010 - 18.10.2010
Ætlað fjármálastjórum í fyrirtæjum og þeim sem veita ráðgjöf um skattamál fyrirtækja eins og bókhöldurum og endurskoðendum.
Á undanförnum árum hefur orðið gríðarleg aukning á fjölda einkahlutafélaga og sameignarfélaga/samlagsfélaga. Er það skiljanlegt þar sem hagfeldara hefur verið skattalega að stunda atvinnurekstur í félagsformi en einstaklingsformi. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Skráningarfrestur er til 8. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Arðsemismat verkefna - reiknilíkön í Excel
Hvenær:
20.10.2010 - 03.11.2010
Ætlað fjármálastjórum og sérfræðingum í fjármálum í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og fjármálafyrirtækjum. Ein. FLE: 5 Reikningsskil og fjármál.Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Gott námskeið, hnitmiðað og markvisst”
- ”Fínt námskeið”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi
Hvenær:
20.10.2010 - 20.10.2010
Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta: - Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Íslenski þroskalistinn
Hvenær:
21.10.2010 - 21.10.2010
Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og uppeldisgreinum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 22.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum
Hvenær:
22.10.2010 - 22.10.2010
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar með börnum á leikskólaaldri og hefur lokið réttindanámskeiði í Íslenska þroskalistanum. Smábarnalistinn er frumsaminn og staðlaður þroskalisti til að meta mál- og hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 15 til 38 mánaða. Listinn er sjálfstætt framhald af Íslenska þroskalistanum.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Kvíði barna og unglinga
Hvenær:
29.10.2010 - 29.10.2010
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans
Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun. Takmarkaður sætafjöldi.
Skráningarfrestur er til 21. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð
Hvenær:
01.11.2010 - 02.11.2010
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.
Ætlað kennurum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu í vor:
- ”Mjög áhugavert námskeið. Kennara tókst mjög vel að koma námsefninu til skila. Skemmtilegt!”
- ”Mjög gagnlegt og skemmtilegt námskeið.”
- ”Frábært námskeið og frábær kennari - væri til í að taka það aftur á morgun.”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Skattlagning við eftirgjöf á skuldum
Hvenær:
08.11.2010 - 08.11.2010
Ætlað löggiltum endurskoðendum, viðurkenndum bókurum og lögfræðingum. Námskeiðið hentar öllum sem starfa við bókhald og reikningsskil svo og þeim er starfa að skattframkvæmd eða láta sig skattamál varða í einni eða annarri mynd.
Fyrirlestrar fara fram á ensku. Skráningarfrestur er til 11. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Árangur, jákvæðni og vellíðan í skólastarfi
Hvenær:
08.11.2010 - 09.11.2010
Námskeiðið byggir á þremur stoðum; kenningum í jákvæðri sálfræði, aðferðum markþjálfunar og gjörhygli. Þessar stoðir verða tengdar einstaklingnum, vinnustaðnum og hópum innan leik- og grunnskóla. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast færni til að nýta sér nýjar aðferðir sem stuðlað geta að auknum árangri og jákvæðari samskiptum í skólastarfi.
Námskeiðið er blanda af stuttum fyrirlestrum, umræðum, verkefnum og hagnýtri þjálfun.
Skráningarfrestur er til 29. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Val á rekstrarformi fyrir atvinnustarfsemi
Hvenær:
10.11.2010 - 10.11.2010
Ætlað þeim sem eru að hefja atvinnurekstur eða eru að íhuga að breyta rekstrarformi fyrirtækis síns.
Þeir sem eru að hefja atvinnurekstur velta iðulega fyrir sér hvaða form þeir eigi að hafa á fyrirtæki sínu. Eiga þeir að stunda atvinnureksturinn á eigin kennitölu eða kennitölu félags og hvaða félags er þá gjarnan spurt. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Skráningarfrestur er til 2. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Jákvæð agastjórnun: Leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi
Hvenær:
18.11.2010 - 19.11.2010
Námskeiðið er ætlað starfsfólki grunnskóla, s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun og leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Gefið verður yfirlit yfir raunprófaðar aðferðir til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun samhliða því að festa jákvæða hegðun og líðan í sessi. Fjallað verður um lausnamiðað viðhorf, góðan liðsanda, skipulag, væntingar, samskipti og fjölbreyttar leiðir til að hvetja nemendur til að sýna viðeigandi hegðun.
Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar - fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör (Vor 2011)
Hvenær:
08.02.2011 - 13.12.2011
Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjafasamningum, ráðningu hönnuða, útboðum, gerð útboðsgagna, samningum við verktaka, fjármögnum verkefna og áhættugreiningu innan fyrirtækja og stofnanna. Námið hentar tæknifræðingum, verkfræðingum, arkitektum, landslagshönnuðum og lögfræðingum ásamt öðrum ráðgjöfum í skyldum fögum sem og verktökum, verkkaupum sem hyggjast tileinka sér þetta sérsvið.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Fjölskyldumeðferð - Nám á meistarastigi (Haust 2011)
Hvenær:
01.09.2011 - 30.05.2013
Í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og Diakonhjemmets Högskola í Noregi.
Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar. Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur: Hafa tveggja til þriggja ára starfsreynslu á sviðinu Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð Vera starfandi á sviðinu á meðan á námi stendur Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi
Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli
Hvenær:
Dagsetning kemur síðar
Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
| Talnalykill: Staðal- og markbundið próf í stærðfræði
Hvenær:
Dagsetning kemur síðar
Talnalykill er greinandi próf í stærðfræði fyrir nemendur í 1. - 7. bekk grunnskóla. Námskeiðið er ætlað bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Þátttaka í námskeiði er forsenda fyrir notkun prófsins.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Matsfræði - Skoðun I (Haust 2010)
Hvenær:
Dagsetning kemur síðar
Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Markmið með námskeiðinu Skoðun I er að kynna ítarlega þrjár meginaðferðir matsfræðinnar. Þjálfun er veitt í reikniaðferðum sem notaðar eru í matsfræðum. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 | Matsfræði - Skoðun II (Haust 2010)
Hvenær:
Dagsetning kemur síðar
Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Markmið með námskeiðinu Skoðun II er að gera nemendur hæfa til að framkvæma sjónskoðun og semja tæmandi lýsingu á algengustu gerðum fasteigna. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|