Vinningshafar í gjafabréfaleik
11.2.2010
Allir sem skráðu sig á námskeið í flokkunum Menning og sjálfsrækt og Tungumál fyrir þann 1. febrúar síðastliðinn fóru í lukkupott hjá okkur í Endurmenntun. Tvö nöfn voru dregin úr pottinum og voru það þau Þórunn Sigurðardóttir og Árni Ingi Jóhannesson sem hljóta gjafabréf að verðmæti 15.000 krónur frá okkur. Þórunn er að fara á dönskunámskeið en hún hefur lengi ætlað að flikka upp á dönskuna sína. Árni Ingi hyggst aftur á móti sækja námskeiðið Úr neista í nýja bók þar sem farið verður yfir ýmis atriði við ritun skáldsagna, allt frá hugmyndavinnu til lokafrágangs.
Við óskum Þórunni og Árna innilega til hamingju.

Þórunn með gjafabréfið góða