Yfir 200 manns á Íslendingasögunámskeið

26.1.2010

Í yfir 15 ár hefur Endurmenntun verið með Íslendingasögunámskeið á hverju misseri. Eins og undanfarin ár er námskeiðið í umsjón Magnúsar Jónssonar sem fjallar nú um Hrafnkels sögu Freysgoða, Vopnfirðinga sögu og tvær Austfirðinga sögur.

 

Morguntímar og fjarfundur nýlunda

Áhuginn á námskeiðinu hefur aldrei verið eins mikill og nú en yfir 200 manns hafa þegar skráð.

Sú nýbreytni var tekin upp á síðasta misseri að vera með þrjá hópa í stað tveggja og hafa þriðja hópinn á miðvikudagsmorgnum í viðbót við þriðjudags- og fimmtudagskvöldin þar sem það hentar mörgum betur að koma hingað á morgnanna. Nú eru aftur þrír hópar  en uppselt er á þriðjudagskvöldum en hægt er að fá sæti á fimmtudagskvöldum og á miðvikudagsmorgnum.

 

Námskeiðið er nú sent út í fjarfundi í fyrsta sinn en áhugi fyrir námskeiðinu er sérstaklega mikill á Austfjörðum sem er einmitt sögusvið sagnanna á þessu misseri. Á fimmtudagskvöldum verða því hópar á Egilstöðum, Reyðarfirði, Vopnarfirði og á Stöðvarfirði að hlusta á Magnús Jónsson.