Mikill áhugi á nýrri námsbraut: Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar

26.1.2010


Mannvirkjagerð á Íslandi er í tímabundinni lægð en hjá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) er verið að hugsa fram í tímann og undirbúa fólk til að takast á við verkefni framtíðarinnar með því að auka við eigin sérþekkingu sem kemur sér vel þegar hjólin fara að snúast á ný – bæði hér heima og erlendis. Í rúmt ár hefur verið unnið að þróun námsbrautarinnar Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar – fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör og hafa margir komið að þeirri vinnu. Má þar nefna fulltrúa frá VFÍ, TFÍ, AÍ, FÍLA, lögfræðideild Háskóla Íslands, iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ og umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ.

Hugmyndin að námsbrautinni kviknaði hjá arkitektunum Sigríði Sigurðardóttur og Ragnheiði Aradóttur sem leituðu til EHÍ. Í gegnum störf sín höfðu þær ítrekað rekið sig á þörfina fyrir lagalegum skilningi í samningagerð af ýmsum toga og nauðsyn þess að geta veitt samstarfsaðilum, verkkaupum og verktökum faglega ráðgjöf í lagalegu tilliti.   

 

Fjölbreyttur hópur og krefjandi og hagnýt viðfangsefni

Viðbrögðin við námsbrautinni hafa ekki látið á sér standa og hefur fjölbreyttur hópur verkfræðinga, tæknifræðinga, arkitekta, verktaka og fleiri skráð sig í námið sem hefst í byrjun febrúar og líkur um næstu áramót.

Námsbrautin er ætluð öllum þeim sem starfa við ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjafasamningum, ráðningu hönnuða, útboðum, gerð útboðsgagna, samningum við verktaka, fjármögnum verkefna og áhættugreiningu innan fyrirtækja og stofnanna. Um er að ræða fjölbreytt nám, þar sem áhersla er lögð á krefjandi og hagnýt viðfangsefni á öllum helstu sviðum fjármála, ráðgjafasamninga, verksamninga, útboðum og opinberum innkaupum auk bótaskyldu. Markmiðið með náminu er meðal annars að nemendur öðlist almennan skilning á undirbúningsferli framkvæmda, hönnunar- og framkvæmdaferla. Aukin þekking og færni í að semja og túlka hönnunar- og verksamninga og hæfni í að fást við ágreiningsmál þeim tengdum er einnig eitt af markmiðunum.

 

Fjögur námskeið á tveimur misserum

Þetta er tveggja missera námsbraut sem hægt er að sækja meðfram vinnu. Eitt námskeið er kennt í einu en alls eru þetta fjögur námskeið: Ákvörðunarferli í framkvæmdum, Hönnunarferli framkvæmda, Ráðning verktaka og framkvæmd verks og Réttarstaða verktaka og verkkaupa. Námið samsvarar 24 (ECTS) einingum á háskólastigi

 

Fyrir hverja

Námið hentar arkitektum, landslagshönnuðum, tæknifræðingum, verkfræðingum og öðrum ráðgjöfum í skyldum fögum sem og verktökum, verkkaupum og lögfræðingum sem hyggjast tileinka sér þetta sérsvið.